03. desember 2007 klukkan 01:00
Jæja.. Ég er með ógeðslega ritstíflu..
Eruði samt viss um að 3 desember er byrjaður, fyrsti í aðventu er búinn? Er ekki bara fólk að taka feil á dagatalinu því í rauninni er bara nóvember? Ég er hreinlega ekki að ná þessu..
Síðasta vikan í skólanum að byrja, eftir hana tekur fyrirlestrar vika.. semsagt, ég mun lifa á kaffi þarnæstu viku og örvandi efnum til að halda mér vakandi þegar fyrirlestrarnir eru. Eg er alveg hræðileg í að halda mér vakandi yfir svona. Í rauninni má líkja mér og fyrirlestrum saman við það þegar konur eru að reyna að láta karlmennina hlusta á vælið í þem sem enginn nennir að pæla í. Næ alveg að detta út. Reyndar er margt sem er áhugavert og lærdómsríkt sem vert er að hlusta á, og að dotta yfir fyrirlestrum er ókurteisi.
En, góðar fréttir. Ég er loksins flutt! Jáhh, mikið var... en nei nei, ég er víst ekki flutt í mína eigin íbúð enn.. Var bara að klára að flytja frá "gamla" heimilinu. Loksins komin með allt mitt hafurtask undir sama þak, og ferlega gaman að hitta allt gamla dótið mitt, gefa því smá klapp á bakið og telja því trú um að ekki líður á löngu þar til við verðum sameinuð á ný, í kósí íbúð einhversstaðar þar sem leigan er upp úr öllu valdi. Vangefið verðið á leigumarkaðnum í dag... Allt orðið svo dýrt eitthvað.. Meira að segja er bollinn minn á Te&Kaffi búinn að hækka upp í 390kr.. já, svona 40 krónur sopinn.. Eins gott að þetta verði þá líka almennilegur bolli, hehe. Þetta er ekkert það dýrt ef maður fær sér þetta annaðslagið. En þegar maður er jafn vitlaus og ég og telji sér um trú að þetta er virkilega eitthvað sem er að koma mér í gang fyrir daginn.. þá er þetta býsna dýrt þegar maður fær yfirlitið sent heim frá bankanum um hversu ógeðis eyðsla sé á manni í hverjum mánuði í ekki neitt. Já, gott að geta verið vitur eftir á. Verst að maður er gjarn á að detta alltaf í sama farið. En...
Þessi vika verður held ég með frekar rólegu móti. Ætla að vona að snjórinn haldist alveg fram að 1 janúar. Má ekki arða bráðna þangað til. Er svo gaman að drattast með strákinn á snjóþotu og draga hann út um allar trissur og renna með honum niður brekkur. Var reyndar næstum því búinn að renna eina ferð áðan í brekku, var reyndar á bílnum mínum, og ef ég hefði bakkað 30 cm lengra hefði ég runnið niður smá spotta og beint á leikvöllinn fyrir neðan didduhús. Sem betur fer var klukkan bara 22:00 og enginn úti. En það var bara svo mikill snjór úti og erfitt að snúa við að ég hreinlega bara áttaði mig ekki á því hvar ég var stödd hehe.. Skoppaði bara upp og lét Sævar ýta bílnum áfram, gott að eiga svona léttan bíl sem þarf bara smá ýt og þá kemst ég áfram. Að sjálfsögðu var myndasjúka systir í glugganum að taka myndir af herlegheitunum. Flassið blindaði mig eins og lögguljós, og sá ég bláa punkta lengi á eftir.
en ritstíflan var víst ekki meiri en þetta.. hef ekki skrifað svona mikið í langan tíma...
Góða nótt